Bloggsíða Önnu
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Dagsetning
12. mars 2010
Klukkan
30.01.2008 00:26:37 / anna

Friends....

http://video.google.com/videoplay?docid=-4355714835680868119&q=friends&total=1550704&start=0&num=10&so=0&type=search&plindex=1

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 01:00:53 / anna

Typical me :D

mohahaha heyrði þetta lag í útvarpinu og gat ekki hugsað en annað en þetta atriði :D Fannst þetta eitthvað svo ég, ein heima á náttfötunum hahahha, tala nú ekki um þegar maður hugsar um vax og hvítvín (sum ykkar fatta hvað ég meina :lol: )

http://www.youtube.com/watch?v=0D0zfB1l1x0

Horfði einmitt á nr.2 á föstudaginn ;) Baarrra snniillld!

Annie 8)


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.01.2008 23:18:10 / anna

só só sorry ;)

Hef bara engan veginn nennt að blogga, bloggleti í mér ;) og myspace-ið búið að taka öll völd :P ó well..

Jólin voru bara ágæt hjá okkur mæðgum, skrýtin en næs. Á aðfangadag byrjuðu jólin þannig að ég kom keyrandi að húsi Kaju og Tryggva 10 mín í 18, maturinn átti að byrja á slaginu 18 eins og öll önnur jól sem ég hef upplifað. En í miðri götunni mæti ég Tryggva askvaðandi í snjóbyl og Köru, Jón og Svein á eftir honum hlaupandi.. Ég bara what? Hvað er í gangi? Var eitthvað rifrildi í gangi eða? Svo stoppa ég bílinn og tala v Tryggva, þá höfðu hundarnir sloppið, einhver skilið grindverkið opið og Glói (kaju hundur) og París (m&p hundur) stungu af! Þannig að Tryggvi og krakkarnir hlupu í átt að Holtaskóla og ég og Ólöf systir keyrðum í næstu götur.  Ég og Ólöf fundum hundana í næstu götu, sem betur fer! En Tryggvi og krakkarnir týndust í snjóbylnum og þá hófst leitin að þeim hehe.. að lokum fann ég Tryggva og krakkarnir hringdu og sögðust vera í íþróttahúsinu. Bara fyndið, einhverjir bjánar þarna á ferð æpandi og gólandi París! Glói! Á aðfangadagskvöld kl.18! ahhahahah þannig að jólin fóru bara í hundana ;) 

 New York var auðvitað æði :haha: ekki hægt að segja annað! Það var sko alveg keyrt sér út, farið á djammið báða dagana og sjoppað báða dagana, fyrri dagurinn var frekar erfiður sökum þynnku hehe ;) en það reddaðist með afréttara á góðum veitingastað í hádeginu ;) Svo var mætt heim snemma um morgun og mætt í vinnu um hálf 11 MJÖG illa sofin og þreytt og þunn :S  

En ég vil hvetja fólk til að setja ljós í glugga hjá sér þegar það tekur niður jólaskrautið.. þetta er frekar dimmt og fúlt svona :| megum alveg reyna að fríska uppá þetta hjá okkur :D

Smá brandari sem ég rakst á hér ;) What´s out boys!

  • Þegar ég var 16 ára, vonaðist ég til að einhvern daginn myndi ég eignast
    kærustu.
    Þegar ég var orðinn 18 eignaðist ég kærastu, en það var engin ástríða. Svo
    ég ákvað að finna mér ástríðafulla stelpu með tilfinningu fyrir lífinu og
    tilverunni.
    Á háskólaárunum var ég með ástríðufullri stelpu, en hún var of
    tilfinningasöm.
    Allt var neyðarástand í hennar augum. Hún grét og hótaði að drepa sig.

    Ég fann fljótlega að mig vantaði stelpu sem væri traust og jarðbundinn.

    Loks, þegar ég var orðin 25 hitti ég mjög jarðbundna stelpu, en hún var
    leiðinleg. Hún var algjörlega útreiknanleg og varð aldrei spennt yfir einu
    eða neinu.

    Lífið varð svo leiðinlegt að ég ákvað að reyna að finna mér stelpu sem að
    væri spennandi.

    Þegar ég var 28 fann ég mjög spennandi stelpu, en gat engan veginn haldið í
    við hana. Hún rauk úr einu í annað og gat aldrei verið lengi á sama stað eða
    verið lengi með sömu áhugamálin. Hún framkvæmdi allt sem henni datt í hug,
    hvort sem það var hættulegt eða fífldjarft og daðraði við allt sem
    hreyfðist. Hún var skemmtileg en áttavillt. Þannig að ég ákvað að reyna að
    finna aðra stelpu með metnað.

    Þegar ég var orðin 31 fann ég loksins gáfaða stelpu með metnað. Hún var með
    fæturna á jörðinni og við giftum okkur. Hún var svo metnaðarfull að hún
    skildi við mig, hirti allt sem ég átti og stakk af með besta vini mínum.

    Núna er ég 44 og er að leita að stelpu með stór brjóst!!!

Og fannst þessi mynd alveg við hæfi :D 449e7399dff94.jpg picture by annasteinunnh

 

kannski of seint but:

1221.jpg picture by annasteinunnh

 

kíkið á þetta:

http://youtube.com/watch?v=ilWQEtmD7nM

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 23:26:39 / anna

Off to NY!!

Jæja mín ákvað bara að skella sér til New York að versla.. kem heim aftur á fimmtudag og blogga þá ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.12.2007 00:59:01 / anna

Fljótt breytist gleði í sorg...

Jæja þá er fyrsta vinnuvikan á nýja vinnustaðnum mínum genginn í garð :D Það var ekkert smá yndislegt að vakna til vinnu á mánudag, vorum allar rosalega spenntar og glaðar.  Það er ótrúlega skrýtin tilfinning að finna fyrir svona mikilli hamingju á einum degi eins og á laugardaginn, sem var án efa besti dagur lífs míns í langan tíma. Var svo ótrúlega hamingjusöm og stolt af allri vinnunni síðustu vikur (þrátt fyrir mikið erfiði) og ekki síður skemmtilegra að fá alla vini og vandamenn til að gleðjast með manni. Þetta var hreint út sagt yndislegt :D og vil ég þakka öllum þeim sem komu eða sendu kveðjur fyrir!  

En þrátt fyrir alla þessa hamingju á þessum degi fékk maður ekki svo góðar fréttir. Svo skrýtið að upplifa svona mikla hamingju í sínu lífi og þurfa í senn að upplifa sorg, sem og margir íbúar reykjanesbæjar gerðu þennan dag. Ég samhryggist innilega aðstandendum stráksins sem lést í ákeyrslu þennan dag. Það er ótrúlega sorglegt að nokkur þurfi að upplifa svona til þess eins að fá hraðahindranir í sína götu.. ég keyrði vesturgötuna áðan og þurfti að keyra yfir 3 smáar hraðahindranir og gat ekki annað en orðið reið! Allt í einu núna eftir allann þennan tíma eru komnar hraðahindranir! Ég hef oft keyrt þessa götu og alls ekki endilega verið á of hægum hraða, en þarna keyrði ég hægt með sorgarsvip og hugsaði til elskulega litla drengsins sem fær ekki að njóta jólanna þetta árið vegna þessa hörmulega slyss..

Rakst á þetta á síðu og fannst þetta svo sætt, ákvað að setja það hér inn...   

Aðeins fyrir þig.
Kæri vinur! Hvernig líður þér? Mér fannst ég verða að senda þér nokkrar línur til að segja þér hversu annt mér er um þig.Ég sá þig í gær þar sem þú varst að tala við vini þína. Ég beið allan daginn í von um að þú myndir líka vilja tala við mig. Ég gaf þér sólarlagið til að enda daginn og svalan andvarann til að hvíla þig, og ég beið.  Þú komst aldrei,það særði mig,en mér þykir samt vænt um þig,því ég er vinur þinn. Ég sá þig sofandi í nótt og mig langaði að leggja hönd mína á enni þitt,svo ég lét tunglsljósið lýsa upp andlit þitt. Aftur beið ég,tilbúin til þess að koma til þín svo við gætum talað saman. Ég hef svo margar gjafir þér til handa. Þú vaknaðir og flýttir þér til vinnu, tár mín voru samblönduð rigningunni. Ef þú bara vildir hlusta á mig. Ég elska þig! Ég reyni að segja þér það í bláum himininum og í hljóðláta græna grasinu. Ég hvísla því að laufinu í trjánum og anda því í litum blómanna. Ég hrópa það til þín í fjallavötnunum og gef fuglunum ástarorð að syngja. Ég klæði þig hlýju sólskininu og ilminum frá náttúrunni.Ást mín til þín er dýpra en hafið og stærra en stærsta þörf hjarta þíns.Spurðu mig!Talaðu við mig! Ekki gleyma mér því ég hef svo mörgu að deila með þér. Ég mun ekki þvinga þig,þetta verður að vera þín ákvörðun. Ég hef valið þig og mun bíða,vegna þess að ég elska þig.                                           
                                                      Þinn vinur                                            
                                                            Jesú
   

Munið bara elskurnar að lifa fyrir daginn í dag, maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér..


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 00:03:54 / anna

opnunarteiti :D

Zone_bodskort.jpg picture by annasteinunnh

 

Hef ENGAN tíma til að blogga fram að opnun.. sry.. brjálað að gera! Allt á haus við að ná þessu, allt á síðustu stundu, smiðurinn veiktist þannig þetta verður kannski ekki alveg 100% eins og maður vildi á laug en nóg til að koma og sjá :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 23:25:27 / anna

Brjálað að gera!!!

Jæja þá er það smá update.. Það gengur allt voða vel hjá okkur að undirbúa opnunina, smiðirnir okkar standa sig eins og hetjur, hann Lalli okkar lætur þetta allt ganga svo vel ;) En samt nóg ennþá eftir að gera og tíminn líður og líður! Við mættum í dag til að mála, mála stóra vegginn rauðann og svo afgreiðsluvegginn svartann.  Milliveggir inni hjá mér eru komnir upp en á eftir að klára þá.  Í gær komu allar vörurnar mínar sem ég pantaði frá Steinari, hann kom færandi hendi til Keflavíkur með allt draslið, 3 bekkir, 3 stólar, ljós, IR ljós, bómull, eyrnapinnar, plokkarar, skæri, vaxtæki, vaxpottur, vax, litir og fleira og fleira og nú flæðir útum skúrinn hjá ömmu :P

Í vikunni verður svo reynt að koma öllu rafmagni í rétt horf, koma plexíinu öllu upp, klára stigann, og koma svo öllum vörum og efnum á sinn stað.. Svo bara panta öl og mat fyrir partýið Stutt til stefnu og enn nóg að gera :S 8|

Skellti inn nokkrum myndum fyrir ykkur:

BeautyZone004.jpg picture by annasteinunnh

BeautyZone001.jpg picture by annasteinunnh

Duglegu smiðirnir mínir :haha:

BeautyZone003.jpg picture by annasteinunnh

Pabbi að vera voða fyndinn

BeautyZone005.jpg picture by annasteinunnh

Sigurrós og Rósa málarar ;)

BeautyZone018.jpg picture by annasteinunnh

Svarti veggurinn..

BeautyZone016.jpg picture by annasteinunnh

Rauði veggurinn...

Er svo yndislega hamingjusöm með þetta, hlakka til að byrja í nýju vinnunni minni :haha: Þó svo þessu fylgir mikið stress og kvíði þá er þetta ofboðslega gaman og gengur bara vel. Er rosalega ánægð með að hafa kýlt á þetta :haha: Vonandi gengur þetta allt að óskum...Erum búnar að vera duglegar að taka myndir, það er svo gaman að fylgjast með barni sínu í fæðingu ;)

Do you know what a bitch means?
B-babe I-in T-total C-control
O-of H-herself! So ladies,,. When
someone says: "You are a bitch..."
SMILE... and say: "Thank you" ;)

Kvitta fyrir komu takk fyrir!!!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 19:48:20 / anna

Allt að verða crazy!!!!!!

 Ja hérna hér.. fáránlegur dagur hefur loksins liðið undir lok, allt í stressi og rugli, redda hinu og þessu og fá sjokk mánaðarins! 8| Ekki alveg sáttar við smiðina sem ætla rukka okkur fáránlega mikið fyrir fáránlega lítið verk. En svona gengur þetta víst bara fyrir sig, þannig við ákváðum að segja þessum smiðum upp og ráða einn smið og svo smala saman liði til að hjálpa.. Við fáum ekki einu sinni sama tímakaup og þeir, samt erum við líka iðnaðarmenn! Hvað er málið með það! He,he

Já nógu í að snúast síðustu daga og svo mikið eftir að gera...can´t believe it! Í gær var ég allan daginn í rvík að stússast, lá í símanum (eyddi veit ekki hvað miklu í inneign!). Um kvöldið fórum við Rósa á skemmtikvöld hjá FÍSF (félagi íslenskra snyrtifræðinga), það er svosem ekki frásögu færandi nema skemmtilegt frá því að segja að það var verið að sýna Airbrush förðun, þar var ung sæt stelpa módel og allt gekk vel þar til komið var að maskaranum. Þá segir ungfrúin að hana svimar eitthvað, svo horfum við á hana verða græna í framan og við það að líða útaf :$.  Svo byrjar hún að kúgast og einhver hljóp til og náði í ruslafötu og greyið stúlkukindin ældi fyrir framan alla, um 20 snyrtifræðingar.. greyið.. Sem betur fer þá leið ekki yfir greyið en hún var alveg græn í framan og að reyna að halda andliti þar til við vorum búnar að sjá árangurinn af förðuninni.. greyið..:P 

Áðan fórum við á Hair&BeautyZone í myndatöku fyrir auglýsingu í VF, voða gaman, það var ágæt tilbreyting svona miðað við allt stressið í dag, búnar að vera í 3 klukkutíma eftir hádegi á fundi við að mæla og teikna út stofuna.. ekki seinna vænna!! He,he nei,nei, þetta var bara svona fínpússning á teikningunni en tók samt andskoti langan tíma!   

Í morgun skellti ég mér í andlitsbað og fótsnyrtingu, Veerrry niiiccce :haha::haha: hjá henni Rósu minni, oh hafði svo mikið gott af þessu, var eitthvað svo ofboðslega þreytt og stressuð, en hefði kannski verið ágætt að vera á leiðinni í það núna eftir amstur dagsins..:S

Já Btw þá vantar mig módel í brazilískt vax á miðvikudaginn næsta ef einhver er tilbúinn.. þá bara hafa samband í s.863-5266 (bara konur í þetta skipti) ;) 

Hey ég gaf mér þó 10 mínútur í að blogga!


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.11.2007 00:13:54 / anna

Allt að gerast :D:D:D

 

Jæja ætla nú að reyna að keep you updated á nýju stofunni :D  Já það er í nógu að snúast þessa dagana í kringum litla barnið mitt, snyrtistofuna.. So much to do in so little time. Er ekkert lítið ánægð með útkomuna, var að fá teikningar og ætla leyfa ykkur að sjá smá sýnishorn hér ;) en þetta er auðvitað bara mynd. Erum orðnar smá stressaðar yfir þessu, svo stutt í þetta :O en þetta gengur bara voða vel.

Svona lítur þetta út núna :

nv007.jpg picture by annasteinunnh

En verður svona :D

BeautyZone.jpg picture by annasteinunnh

BeautyZone7.jpg picture by annasteinunnh

 

BeautyZone6.jpg picture by annasteinunnh

3 snyrtiherbergi eru bakvið græna vegginn..

Segir kannski ekki mikið en svona smá hugmynd af þessu :D Hope you like...

Og já btw nafnið er Hair & BeautyZone :D

Rosa gaman hjá okkur mæðgum úti í snjónum :D

nv005.jpg picture by annasteinunnh

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 23:20:50 / anna

Finally..

eyebannnerrrrr.jpg picture by annasteinunnh 

Loksins :D 

Jæja enn og aftur er langur tími síðann ég bloggaði síðast.. sry.. Það hefur heill hellingur gerst síðan þá, ætla nú ekki að segja frá því öllu hér en svona næstum ;)

Stóra leyndarmálið : Jæja þá er komið að því að uppljóstra leyndarmálinu góða :D Þann 1.des næstkomandi (í síðasta lagi, ekki alveg komin dagsetning ennþá;) þá mun ég opna snyrtistofu :D JIBBÝ :D Hlakka ekkert lítið til :D :D Er ekkert smá spennt en svolítið stressuð líka þar sem svo stutt er þangað til. Þetta verður snyrtistofa með 3 snyrtistólum og svo verða 2 hárgreiðslukonur með mér og ætlum við okkur að bjóða uppá hinar ýmsu meðferðir, gaman, gaman.. Nú er ég semsagt komin á fullt við að skipuleggja, panta og fleira, já nógu í að snúast, eiginlega miklu meira en maður hélt, þarf að redda öllum tilskildum leyfum og þess háttar. Svo er byrjað að taka húsnæðið í gegn, stofan mun vera uppi hjá Ingvari Helgasyni í Njarðvík, þar sem Kaffitár var.  Góður andi þar eins og kennari minn í stjórnun sagði þegar ég sagði honum frá þessu, vildi meina að þar sem Kaffitár byrjaði þar sem smáfyrirtæki þá myndi þetta örugglega ganga vel hjá okkur þar sem góður andi ríkir þar, við skulum bara vona það besta ;) 

Ef þið eruð forvitin : http://www.comfortzone.it/

beauty_therapy.jpg picture by annasteinunnh

Góða helgi :D  


» 10 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 00:15:09 / anna

jæja mæja...

Jæja enn og aftur reyni ég að blogga.. Nóg að gerast hjá mér þessa dagana eins og alltaf, hef varla tíma til að blogga bara!! Ha,ha.. Skráði mig í 12 vikna átak, byrja í 5 vikna spinning átaki og svo verður farið í þyngdirnar eftir það, þannig að vonandi verður maður orðinn vel pumpaður fyrir jólin, he,he.

LOL.jpg LOL picture by annasteinunnh

Er enn að vinna í Optical og á Dekrinu til skiptis og svo 3x í viku í spinning og svo 2x í viku í kvöldskóla, nóg að gera, eiginlega of mikið eins og svo oft, enda ekki þekkt fyrir að sitja á rasssgatinu og gera ekki neitt.   já mín ákvað bara að skrá sig í Meistarann.. hehe en bara fyndið að labba inní fyrsta tímann. Við erum 23 í tímanum, þar af eru 21 strákur, fallega líka!  Múrarar, bifvélavirkjar, rafvirkjar, smiðir og fleira á öllum aldri mættir í vinnugallanum í tíma.  Og ég var eina stelpan í fyrsta tímanum, frekar skrýtið.. Já svona heldur þetta eitthvað áfram hjá mér á næstunni, svo er annað í gangi sem er ekki vert að segja frá að svo stöddu, leyndarmálið mitt stóra sem ég er svvooooo spennt yfir :D

41n.jpg picture by annasteinunnh

Ég var nú ekkert lítið hneyksluð þegar ég las þessa frétt á vf.is: http://www.vf.is/frettir/numer/32919/default.aspx 

Kalsarigning var í nótt og full ástæða til að vera betur klæddur.  Ég meina það! Hvað á fólk bara að taka sinn tíma og klæða börnin í vegna veðurs heldur en að flýta sér út frá brennandi húsi?? Það er eins og sá sem skrifaði greinina sé hneykslaður á því að börnin skulu vera svona illa klædd, je minn eini! Ég hugsa að ég myndi nú bara hlaupa beinustu leið út með barnið mitt! Maður hefur örugglega ekki rænu á að hugsa um meira en það að bjarga barninu sínu, þó svo maður viti ekkert um hversu mikinn eða lítinn bruna er verið að tala um..  

Ljósanótt var bara ágæt hjá okkur, Hafrún var hjá pabba sínum og ég nýtti mér daginn í að fara í Reykjavík á snyrtisýningu/keppni. Mig langaði nú rosalega að taka þátt en það var bara eitthvað of mikið að gera þessa helgi, fúlt að þetta skildi hafa lent á ljósanæturhelgi. Þar var keppt í Snyrtifræðingur ársins, í Litun + plokkun, handsnyrtingu + andlitsbaði. Maður tekur bara vonandi þátt næst :D Snyrtistofa Ágústu vann Snyrtistofa ársins og Ágústa var valinn snyrtifræðingur ársins, flott hjá henni.  Það sem kom mér mest á óvart var það að þar var einn strákur að gera andlitsbað, hann var að kynna Snyrtiskólann.  Mjög skemmtilegt og spennandi að sjá karlmann gera andlitsbað, smá tilbreyting.  Hann er víst nemandi við skólann og sá fyrsti í þessum geira :D Gott hjá honum. (and he´s gay).Þannig að ég fór ekkert niðrí bæ hér í Kef fyrr en seint um kvöldið og náði nú flugeldasýningunni sem var voða flott.  

jæja best að þvo þvott!!! arrggg..

1250.jpg picture by annasteinunnh

Bara svona þar sem við vorum að horfa á Dýrin í Hálsaskógi í dag þá viljum við Hafrún minna ykkur á að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 20:19:21 / anna

bloggbloggbloggblogg

Kannski kominn tími á að blogga aftur, heimsóknum fer fækkandi á síðunni sökum leti.. Búið að vera nóg að gera hjá mér þessa dagana, vinna eins og mofo í 2 vinnum, hugsa um heimilið og 2 börn hehe.. eða þannig. Um daginn þurfti ég að mæta kl.4 um nóttina í vinnuna, í stað 5, og ég lagði af stað uppá völl frekar þreytt, skellti bílastæðakortinu í tækið til að opna hliðið, svo ætlaði ég að setja það á sinn stað í hillu undir geislaspilaranum, en svo allt í einu rann það úr höndunum á mér og saugst inní geislaspilarann, shit!! Og það situr þar fast ennþá. Mér leið eins og versta hálfvita að þurfa að hringja bjöllunni og útskýra af hverju ég væri ekki með kort til að komast útaf bílastæðinu :S Bjáni, kjáni..

Við Robbi skelltum okkur til eyja um versló, fórum með einkaflugvél á sunnudeginum og djöfull var gaman, þetta var geggjað! Annað skiptið sem ég fer til eyja um versló og þetta var svo sannarlega skemmtilegasta helgin mín til þessa :D Vá lítið sem ég ætla að fara aftur á næsta ári, fínt að fara bara á sunnudeginum, það er sko alveg nóg.  Við enduðum á því að sofa 8 í tjaldinu mínu, ég vildi fara með stóra tjaldið og var ekkert lítið röflað yfir því, það voru svo margir sem ætluðu ekkert að sofa. En já ég var með þeim síðustu til að fara að sofa um kl.7 um morguninn og þá voru bara um 5 manns þegar mættir í háttinn í tjaldið mitt! Ég hitti náttúrulega Jónsa minn, oh hann er svo mikið æði þessi elska :D :D

CopyofIMG_5043-2.jpg picture by annasteinunnh

Kroppalingar í eyjum hehe... Bara geggjað veður!!

Svo var farið um daginn í Gullgelludjamm í Reykjavík, vá það var ekkert lítið gaman hjá okkur gullskvísunum! Jane fór á kostum í rappfílingnum og ég og Edda tókum náttúrulega “hamarinn” og það líka á video sem enginn fær að sjá, hahahah..

Hafrún var að byrja á stóru deildinni á leikskólanum og greyið var svo uppgefin í gær að hún sofnaði í fanginu á mömmu úti á fótboltaleik. Það er sko erfitt að vera svona stór..

Kben053.jpg picture by annasteinunnh

\

Sveinn bróðir var að gefa út disk með Jan Mayen, allir að kaupa hann! Kíkið á www.myspace.com/janmayen  og hlustið á Joyride og We just want to get high bara snilld!

i_blogg_jan_mayen_so_much_better_th.jpg picture by annasteinunnh


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 00:32:40 / anna

Barnaland

Nýjar myndir komnar inná barnaland:

wwww.barnaland.is/barn/14937

 Nýtt blogg á næstu dögum..

Annie 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.07.2007 20:33:34 / anna

Hæ hó I´m alive :D

Sorry for the “not” blogging, been mega laaaaazzzzyyyyy! 8|

Já svona gengur ekki, og er búin að fá nokkrar skammir fyrir, tala nú ekki um að láta ekki vita af sér eftir JT, það er nú bara hneyksli! En anyways, þá var kallinn bara HOT! Eins og allir hafa væntanlega gert ráð fyrir þrátt fyrir bloggleysið.  OH HVAÐ ÞAÐ VAR GAMAN! ÞETTA VAR ALGJÖRT ÆÐI :haha: :haha: :haha:

Very good Mojito in DK :D

Kben003.jpg

Við Gullgellurnar dönsuðum af okkur rassgatið á tónleikunum! Mér var litið í kringum mig og sá fullt af pörum í kring sem stóðu bara og horfðu á, VÁ hvað það hlýtur að hafa verið leiðinlegt hjá þeim, gaman líka bara að standa! Já nei! Ekki Gullgellurnar, þær kunna sko að tjútta ;)  Eftir að hafa staðið í 3 tíma í röð, frekar pirruð og mega mál að pissa þá var þetta allt þess virði! Við gerðum nefnilega þau mistök í byrjun að drekka 2 bjóra eða svo í röðinni og áttum eftir að bíða í 3 tíma :$, þannig að ástandið var orðið frekar slæmt í restina, ég gafst upp! Ætlaði sko að beila á JT til að komast á klóið, gat ekki meir, en ég gat troðið mér aftur í röðina, sem betur fer annars hefði ég sko séð eftir því!

The Goldengirls :D

(In the rain in DK)

Kben012.jpg

  Já snúllan mín varð 4 ára þann 6.júlí :haha: og var að sjálfsögðu haldin afmælisveisla. Svo talar hún ekki um annað en að verða 6 ára og missa tennur, henni hlakkar svo til segir hún þessi elska :D Bara fyndin.  IMG_0339-1.jpg Hún er búin að vera hjá mér núna í næstum 2 vikur í sumarfríi, voða næs hjá okkur, kjóll uppá hvern einasta dag og sól, bara geggjað :D Við erum búnar að fara í Nauthólsvík, í útilegu og í sund og veit ekki hvað. Svo fer skvísan í 2 vikna frí til pabba síns og þá verður bara unnið og unnið.. :cry: Er enn að bíða eftir svari frá HR, gæti orðið gráhærð I tell ya! :klikk: Allir í sumarfríi og eitthvað ruglumbull, ætli maður verði ekki bara að vinna í vetur.....?  

jæja, bara stutt blogg að sinni

Tjá Bella

Annie

Ps. www.annagold.bloggar.is  eða www.blog.central.is/anna-golddigger ?? hvað finnst ykkur?

Ég, Robbi og Jónas ætlum að smala saman í útilegu um versló, hver vill með?

KVITTA SVO!!!!!

ÞÚ SEM ERT NR.20.000 VERÐUR AÐ KVITTA! SKYLDA!


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6